top of page

Að hafa ekki stoð til að standa á


Annar hluti af pistlinum: Hvað vantar í líf okkar?

Einhver gæti sagt: „En ég lifi góðu lífi. Ég reyni að vera vingjarnlegur og nærgætinn við aðra. Ég lifi eftir Boðorðunum tíu.“ En mergur málsins er sá að Boðorðin tíu, eða lögmálið, eins og það er kallað í Biblíunni, var ekki gefið til þess að gera okkur góð, heldur til að sýna hversu slæm við í raun erum. Biblían segir „... með því að enginn lifandi maður réttlætist fyrir honum af lögmálsverkum. En fyrir lögmál kemur þekking syndar.“ Róm 3:20. Enginn getur réttlæst af lögmálsverkum eða því sem lögmálið segir. Tilgangur lögmálsins er til þess að við gerum okkur grein fyrir hversu syndug við erum. Þú gætir sagt að lögmál Guðs hafi verið sett fram til þess að „þagga niður í okkur“ og sýna okkur hversu sárlega við þurfum á hjálp og fyrirgefningu að halda, fyrir okkar dauðvona ástand sem syndarar. Lítum á versið hér að neðan til að átta okkur betur á alvarleika og eðli syndarinnar.

  1. Við höfum öll misst marks (Róm 3:23). „Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð, ...“

Við höfum öll syndgað. Fyrir þá sem vilja lýsa því yfir að þessi eilífi sannleikur eigi ekki við um þá, segir vers tíu einfaldlega „Eins og ritað er: Ekki er neinn réttlátur, ekki einn.“ Róm 3:10. Annað orð yfir réttlátur er góður. Orðið réttlátur merkir; „Sá sem er eins og hann eða hún á að vera.“ Þegar Biblían segir að enginn sé réttlátur, eða góður, þá er ekki verið að vísa svo mikið til hegðunar heldur innri persónuleika – karakter.

Hvað er nákvæmlega átt við með „Guðs dýrð“ sem talað er um í 23.versi Rómverjabréfsins, sem sagt er að okkur skorti? Guðs dýrð er algjör fullkomnun. Jesús sagði, „Verið þér því fullkomnir, eins og faðir yðar himneskur er fullkominn.“ Matt 5:48. Með öðrum orðum, sérhver sem ekki er eins góður og Guð, er ekki skaplegur honum – er ekki ásættanlegur í Guðs augum. Ein skilgreining syndar, sem dregin er af gríska orðinu hamartia þýðir „að missa marks“. Hvað fullkomnun varðar, þá missum við oft svo mikils marks í lífinu. Þó að okkar synduga eðli geri okkur ókleift að lifa eftir viðmiðunum Guðs, þá getum við ekki eingöngu skellt allri skuldinni á okkar synduga eðli. Synd er einnig úthugsaður og vísvitandi verknaður.

  1. Synd er vísvitandi verknaður (sjá Efes 2:1-3).

Annað orð yfir synd í Efes 2:1 er afbrot eða misnotkun. Orð þetta talar um mistök/yfirsjón, eða frávik frá sannleikanum. Til samanburðar við það að einfaldlega „missa marks“ þá er þetta vísvitandi verknaður. Af því að synd er vísvitandi verknaður, þá getum við ekki kennt syndinni um samfélagslegt, umhverfislegt og andlegt eða líkamlegt ástand okkar. Allir hafa valið að gera það sem var rangt. Ef við andmælum þessu sjónarmiði, „þá erum við aðeins að blekkja okkur sjálf og lifum ekki í sannleikanum. „Ef vér segjum: Vér höfum ekki synd, þá svíkjum vér sjálfa oss og sannleikurinn er ekki í oss.“ 1. Jóh 1:8.

  1. Laun syndarinnar er dauði (Róm 6:23). „Laun syndarinnar er dauði, en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum.”

Samkvæmt biblíunni, þá höfum við móðgað hinn helga Guð. Við höfum ekki gert það einu sinni eða tvisvar, heldur svo mörgum sinnum að við getum ekki talið það. Rómverjabréfið segir að laun syndarinnar sé dauði. Launin, eða gjaldið, er eitthvað sem þú færð greitt fyrir ákveðið verk sem þú hefur unnið eða látið í té. Með öðrum orðum, þá færðu það sem þú hefur unnið þér fyrir.

Vegna þess að við höfum öll ítrekað syndgað, þá höfum við þegið laun syndarinnar sem er dauði, sem er eilíf kvöl og hegning á stað sem kallað er hel – eða helvíti. Þar sem við erum algjörlega viðskila við föður okkar á himnum, þ.e. eilífur aðskilnaður frá Guði.

Á meðal alls þessa tals um synd og dauða, þá eru nokkrar góðar fréttir. Guð hefur gefið okkur leið til að komast hjá refsingu eða dauða syndarinnar í lífi okkar. Hann hefur gert okkur kleift að eiga samband við sig og gleðjast yfir voninni um eilíft líf án refsingar. Ég vonast til að þú haldir áfram að lesa og fylgist með næsta pistli.

Guð blessi þig og varðveiti á lífsgöngu þinni!

0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page